Miðvikudaginn 13. september 2017 kl. 15.00-18.30 var haldið Framtíðarþing um farsæla öldrun í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði. Þingið var samvinnuverkefni Öldrunarráðs Íslands, Landsambands eldri borgara og sveitarfélaganna Ísafjarðarbæjar, Bolungarvíkurkaupstaðar og Súðavíkurhrepps.

IMG 5887

 

Þingstjóri var Ingrid Kuhlman frá Þekkingarmiðlun ehf. Þingið var með sama sniði og sambærileg þing sem haldin hafa verið, í Reykjavík í mars 2013, á Akureyri í maí 2015 og á Selfossi í nóvember 2015. Leitast var við að skapa vettvang fyrir þá sem koma að öldrunarmálum, vilja stuðla að uppbyggilegri umræðu um málefni aldraðra og skiptast á skoðunum um það hvernig samfélag við viljum búa eldri kynslóðum landsins. Markmið framtíðarþingsins á Vestfjörðum var að sama skapi að miðla upplýsingum og viðhorfum eldri borgara til stjórnvalda um það hvernig aldraðir sjá framtíðina fyrir sér og skapa leiðbeiningar til stjórnvalda hvernig aldraðir líta mál sín til framtíðar. Einnig að heyra sjónarmið og áherslur Vestfirðinga á þinginu og hvort áherslumunur sé t.d. á lífsviðhorfum milli landshluta. Þingstjóri skilar samantektarskýrslu frá þinginu.

IMG 5930

Fundarfyrirkomulag byggði á sömu hugmyndafræði og notuð var á Þjóðfundunum sem haldnir voru í Reykjavík árin 2009 og 2010. Unnið var á nokkrum borðum og á hverju borði var borðstjóri en hans hlutverk var að sjá til þess að allir við borðið fengju jöfn tækifæri til að tjá sig og að tryggja virka hlustun þannig að öll sjónarmið kæmust að. Þátttakendur Framtíðarþingsins á Ísafirði voru 59 talsins.

IMG 5938