framtidarthing-um-farsaela oldrun selfossi 2015Mánudaginn 16. nóvember 2015 kl. 16.30-20.30 var haldið Framtíðarþing um farsæla öldrun í þjónustumiðstöð aldraðra á Selfossi, Grænumörk 5. Þingið var samvinnuverkefni Öldrunarráðs Íslands, Landsambands eldri borgara, Velferðarráðuneytisins og sveitarfélaganna Hrunamannahrepps, Hveragerðisbæjar, Bláskógabyggð, Sveitarfélagsins Ölfus, Rangárþings eystra, Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Sveitarfélagsins Árborgar. Stutt ávörp í upphafi þings fluttu Haraldur Einarsson 8. þingmaður Suðurkjördæmis og Haukur Ingibergsson formaður Landssambands eldri borgara.

Þingið var með sama sniði og sambærileg þing sem haldin hafa verið, í Reykjavík í mars 2013 og á Akureyri í maí 2015. Leitast var við að skapa vettvang fyrir þá sem koma að öldrunarmálum, vilja stuðla að uppbyggilegri umræðu um málefni aldraðra og skiptast á skoðunum um það hvernig samfélag við viljum búa eldri kynslóðum landsins. Markmið framtíðarþingsins á Selfossi var að sama skapi að miðla upplýsingum og viðhorfum eldri borgara til stjórnvalda um það hvernig aldraðir sjá framtíðina fyrir sér og skapa leiðbeiningar til stjórnvalda hvernig aldraðir líta mál sín til framtíðar. Einnig að heyra sjónarmið og áherslur Selfyssinga á þinginu og hvort áherslumunur sé t.d. á lífsviðhorfum milli landshluta.

Fundarfyrirkomulag byggði á sömu hugmyndafræði og notuð var á Þjóðfundunum sem haldnir voru í Reykjavík árin 2009 og 2010. Unnið var á sjö 8-9 manna borðum og á hverju borði var þjálfaður borðstjóri en hans hlutverk var að sjá til þess að allir við borðið fengju jöfn tækifæri til að tjá sig og að tryggja virka hlustun þannig að öll sjónarmið kæmust að. Þátttakendur Framtíðarþingsins á Selfossi voru 77 talsins.

Hér má nálgast samantekt á niðurstöðum þingsins sem PDF skjal.