Styrkur úr Rannsóknasjóði Öldrunarráðs Íslands. Heilsuefling eldra fólks í heimahúsum
Stjórn Öldrunarráðs Íslands veitir árlega styrki úr Rannsóknasjóði Öldrunarráðs til rannsóknarverkefna á sviði öldrunarmála.
Að þessu sinni veitti stjórn ráðsins Sonju Stelly Gústafsdóttur 300.000 króna styrk en hún er doktorsnemi í heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands.
Í verkefni sínu kannar hún áhrif einstaklingsþátta og umhverfis á þátttöku í heilsueflingu, viðhorf og reynslu 65 ára og eldri sem búa í heimahúsi á norðanverðu Íslandi. Markmiðið með verkefninu er að fá upplýsingar um heilsulæsi eldra fólks en engar rannsóknir eru til um stöðu heilsulæsis á Íslandi. Erlendar rannsóknir sýna að heilsulæsi minnkar með hækkandi aldri en þekkingu vantar á því hver staðan er á Íslandi. Rannsóknin mun því geta gefið mikilvægar upplýsingar um þætti sem vitað er að hafi áhrif á heilsu eldra fólks.
Myndin er tekin við afhendingu styrksins þann 20. janúar síðastliðinn. Á myndinni eru hluti stjórnar Öldrunarráðs Íslands og Sonja Stelly Gústafsdóttir.
Frá hægri: Tryggvi Þórhallsson (stjórnarmaður), Sigurður Sigfússon (varaformaður), Þórunn Sveinbjörnsdóttir (stjórnarmaður), Jórunn Frímannsdóttir (formaður) Sonja Stelly (styrkþegi), Anný Lára Emilsdóttir (stjórnarmaður), Andrea Laufey Jónsdóttir (starfsmaður stjórnar) og Janus Guðlaugsson (stjórnarmaður).

Aðalfundur 2019
Til aðildarfélaga
Öldrunarráðs Íslands
Reykjavík, 23. apríl 2019.
Efni: AÐALFUNDUR ÖLDRUNARRÁÐS ÍSLANDS 2019
Hér með er boðað til aðalfundar Öldrunarráðs Íslands
Fimmtudaginn 23. maí 2019
Kl 14:00-16:00
Hjúkrunarheimilinu Sóltúni, Sóltúni 2 Reykjavík
Dagskrá:
- Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum ráðsins
- Afhending viðurkenningar Öldrunarráðs
- Önnur mál
Kaffihlé
Ingrid Kuhlman MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði (MAPP) flytur erindi um niðurstöður rannsóknar sinnar um skynjun og skilningi eldri borgara á vellíðan.
Athugið að allir eru velkomnir á aðalfundinn.
Aðaildarfélög eru beðin um að tilkynna þátttöku á aðalfund með því að senda kjörbréf, á netfangið
Bls 5 af 5