Rannsóknarsjóður
Rannsóknasjóður Öldrunarráðs Íslands hefur það hlutverk að styðja við bakið á rannsóknum í öldrunarmálum á Íslandi auk sérstakra verkefna annarra í málaflokknum, sem stjórn sjóðsins metur til þess fallin hverju sinni. Reynt er að veita styrki úr sjóðnum árlega. Aðalhvatamaður að stofnun sjóðsins var Gísli heitinn Sigurbjörnsson, forstjóri hjúkrunarheimilisins Grundar. Venja hefur verið að úthluta úr sjóðnum í námunda við afmælisdag Gísla, sem er 29. október.
Rannsóknarsjóður Öldrunarráðs Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum
Úr 5. gr. skipulagsskrár Rannsóknarsjóðsins: Hlutverk sjóðsins er að styrkja rannsóknir í öldrunarmálum á Íslandi svo og þau verkefni sem stjórn sjóðsins ákveður.
Umsóknarfrestur er til og með 21. október 2013 og skulu umsóknir sendar til Öldrunarráðs Íslands, Hrafnistu við Laugarás, 104 Reykjavík. Frekari upplýsingar veitir Pétur Magnússon, formaður stjórnar Öldrunarráðs.
Fyrirspurnir sendist á netfangið
Stjórn Öldrunarráðs Íslands
Tveir hlutu styrk úr Rannsóknarsjóði Öldrunarráðs Íslands
F.v. Dr. Erla S. Grétarsdóttir, sálfræðingur á Geðsviði LSH, Unnur Þormóðsdóttir, hjúkrunarstjóri á heilsugæslustöð Selfoss og meistaranemi í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri og Pétur Magnússon, formaður Öldrunarráðs Íslands. |
Fyrsta nóvember veitti stjórn Öldrunarráðs Íslands tvo rannsóknarstyrki úr styrktarsjóði ráðsins vegna rannsókna í öldrunarmálum. Öldrunarráð veitir árlega styrki til rannsókna í málaflokknum og fór afhending þeirra fram við hátíðlega athöfn á Hrafnistu í Reykjavík.
Unnur Þormóðsdóttir, hjúkrunarstjóri á heilsugæslustöð Selfoss og meistaranemi í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri, hlaut styrk að upphæð 300 þúsund krónur í tengslum við meistararannsókn sína, sem snýr að mati á gæðum þjónustu heimahjúkrunar á heilsugæslustöðinni á Selfossi. Markmið rannsóknarinnar er að meta hvort fræðsla til starfsfólks heimahjúkrunar skili sér í bættri og markvissari þjónustu við skjólstæðinga.
Dr. Erla S. Grétarsdóttir, sálfræðingur á Geðsviði LSH, hlaut styrk að upphæð 100 þúsund krónur í tengslum við rannsókn á upplifun einstaklinga sem greinst hafa með Alzheimers sjúkdóminn. Tilgangur rannsóknarinnar er að varpa ljósi á aðstæður ný-greindra Alzheimers sjúklinga út frá þeirra eigin reynslu og upplifun, en eldri rannsóknir hafa jafnan byggt á mati aðstandenda og fagaðila. Reyndar verða nýstárlegar mæliaðferðir notaðar til þess að leggja mat á færni sjúklinga og líðan þeirra frá ýmsum sjónarhornum.
Reykjavík 1. nóvember 2012.
Rannsóknarsjóður Öldrunarráðs Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum
Úr 5. gr. skipulagsskrár Rannsóknarsjóðsins: Hlutverk sjóðsins er að styrkja rannsóknir í öldrunarmálum á Íslandi svo og þau verkefni sem stjórn sjóðsins ákveður.
Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2012 og skulu umsóknir sendar til Öldrunarráðs Íslands, Hrafnistu við Laugarás, 104 Reykjavík. Frekari upplýsingar veitir Pétur Magnússon,
formaður stjórnar Öldrunarráðs. Fyrirspurnir sendist á netfangið
Þrír hlutu styrki úr Rannsóknarsjóði Öldrunarráðs Íslands
Stjórn Öldrunarráðs Íslands veitti í dag þremur aðilum rannsóknarstyrki úr styrkarsjóði ráðsins vegna rannsókna í öldrunarmálum. Öldrunarráð veitir árlega styrki til rannsókna í málaflokknum og fór afhending þeirra að þessu sinni fram á Hrafnistu í Reykjavík.
Styrkir veittir úr Rannsóknasjóði Öldrunarráðs Íslands 2010
Nýlega fór fram styrkveiting úr Rannsóknasjóði Öldrunarráðs Íslands. Sjóðurinn hefur verið starfræktur um langt skeið en aðalhvatamaður að stofnun hans var Gísli heitinn Sigurbjörnsson, forstjóri hjúkrunarheimilisins Grundar. Venja hefur verið að úthluta úr sjóðnum í námunda við afmælisdag Gísla, sem er 29. október. Rannsóknasjóðurinn hefur það hlutverk að styðja við bakið á rannsóknum í öldrunarmálum á Íslandi auk sérstakra verkefna annarra í málaflokknum, sem stjórn sjóðsins metur til þess fallin hverju sinni. Á þessu ári barst stjórn Öldrunarráðs fjöldi umsókna vegna afar áhugaverðra rannsókna í öldrunarmálum. Það reyndist því vandasamt verk að velja þær umsóknir sem ákveðið var að veita styrki fyrir árið 2010.
Að þessu sinni var veitt úr sjóðnum samtals 950 þúsundum króna til fjögurra aðila. Þeir eru: