Árlega veitir Öldrunarráð Íslands sérstaka viðurkenningu sem kallast Fjöreggið til einstaklings,stofnunar eða félagasamtaka sem hafa unnið einstakt starf tengt málefnum eldra fólks.
Stjórn Öldrunarráðs ákvað að veita Rannveigu Guðnadóttur viðurkenninguna og Fjöreggið fyrir árið 2024. Rannveig er stofnandi og verkefnastjóri Eden Alternative á Íslandi. Rannveig er hjúkrunarfræðingur með Diplóma í Stjórnun, MSc í kennslu og öldrunarfræði. Hugsjón Rannveigar er að vellíðan sé sett í fyrsta sæti þeirra einstaklinga sem þurfa þjónustu og stuðning sem og þeirra sem þjónusta og styðja aðra.