Orlofsdvöl Eldriborgararáðs fær viðurkenningu Öldrunarráðs Íslands 2026.
Öldrunarráð Íslands veitir árlega viðurkenningu til einstaklings, stofnunar eða félags sem talið er hafa komið með sérlega gott framlag til eldra fólks í landinu. Í ár hlotniðist sá heiður Orlofsdvöl Eldriborgararáðs Reykvavíkurdæmis eystra að fyrir framúrskarandi starf sem felst í sumardvöl fyrir eldri borgara á Löngumýri. Þar eru sumarbúðir í sjö vikur þar sem fólk dvelur í fimm eða sex sólarhringa við gott atlæti og mikla tilbreytingu. Þarna er fólk í öruggu umhverfi, fær fimm máltíðir á dag og skemmtun og uppbyggjandi dagskrá. Meðalaldur er um 83 ár. Þetta er oft eina tilbreytingin sem eldra fólkið sem þangað kemur getur nýtt sér. Þjóðkirkjan hefur veitt starfinu rausnarlegan styrk ár hvert til að þetta sé gerlegt en þátttakendur greiða hóflegt gjald fyrir veruna. Margrét S. Guðjónsdóttir stýrir orlofsdvölinni en að dagskrá standa með henni Arna Ingólfsdóttir, Gunnar Rögnvaldsson staðarhaldari á Löngumýri og Anna Sigríður Helgadóttir.
Öldrunarráð skipa fagaðilar úr mörgum áttum sem koma að öldrunarmálum. Aríel Pétursson er formaður frá Sjómannadagsráði, Magnús J. Magnússon Landssamtök eldri borgara, Birna Sif Atladóttir frá Grundarheimilunum, María I. Kristjánsdóttir Samband íslenskra sveitafélaga, Hildur Þórarinsdóttir Félag öldrunarlækna, Margrét Á. Ósvaldsdóttir Félag stjórnenda í öldrunarþjónustu, Thelma Vestmann Velferðarsvið Reykjavíkur, Þorbjörn Guðmundsson Alþýðusamband Íslands, Bryndís Rut Logadóttir Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Bára Friðriksdóttir Þjóðkirkjan.
Aríel afhenti þeim fjöregg frá Koggu með áletruninni: Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands 2026. Orlofsbúðir eldri borgara á Löngumýri í Skagafirði fyrir frumkvöðlastarf í þágu aldraðra.

